Stefna um notkun gervigreindar hjá Garðabæ
Það er stefna Garðabæjar að nota gervigreind með öruggum, skilvirkum og stýrðum hætti í verkefnum bæjarins. Gervigreindarstefna Garðabæjar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 5. júní.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi 5. júní stefnu um notkun gervigreindar hjá bænum. Í gervigreindarstefnunni kemur fram að markmiðið með notkun gervigreindarlausna sé að leggja nútímalegt verkfæri í hendur starfsfólks bæjarins og ýta þannig undir sjálfbærni og sjálfstæði þess í sínum verkefnum og vinnu. Takmarkið er ávallt að styðja við góða þjónustu við bæjarbúa.
„Gervigreindarlausnir ætti að nota sem stuðning við vinnu en þær ættu ekki að verða að ómissandi þætti í vinnslu starfsfólks sveitarfélagsins nema að slíkt sé ákveðið og skilgreint með skýrum hætti,“ segir m.a. í stefnunni.
Í stefnunni segir einnig að gervigreindarlausnir skuli meðhöndla varlega. Áhersla verður lögð á að veita starfsfólki góða fræðslu um hvernig nota eigi gervigreinarlausnir með öruggum hætti og í þeirri fræðslu verður fjallað ýtarlega um upplýsingaöryggi. Einungis verða samþykktar gervigreinarlausnir sem verða áhættumetnar notaðar í vinnu innan stofnana bæjarins.
„Garðabær er meðal fyrstu sveitarfélaga ef ekki fyrsta sveitarfélagið til að setja sér stefnu í notkun gervigreindar. Með stefnunni leggjum við ákveðinn grunn að markvissri innleiðingu snjallra lausna og ýtum undir nýsköpun í okkar vinnu, bæði í stjórnsýslunni og skólunum. Markmiðið er að efla þjónustuna við íbúa,“ segir Ágúst Þór Guðmundsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Garðabæjar sem hefur leitt vinnuna við gerð gervigreindarstefnunnar.