Fréttir: janúar 2021
Fyrirsagnalisti
Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg
Framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar, Vífilsstaðavegar og Lyngáss eru í gangi og munu standa yfir fram á sumar. Endurbæturnar koma til með að auka öryggi vegfarenda og umferðarflæði Hafnarfjarðarvegar ásamt því að bæta tengingu inná Hafnarfjarðarveg og á milli hverfa í Garðabæ.
Lesa meiraNý forvarnastefna Garðabæjar í vinnslu
Nú stendur yfir vinna við gerð nýrrar forvarnastefnu Garðabæjar og íbúar geta sent inn ábendingar eða athugasemdir um stefnuna til og með 8. febrúar nk.
Lesa meiraLífshlaupið 2021
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna.
Lesa meiraBoðið upp á Jazzhrekk fyrir grunnskólanemendur
Það ríkti sannkölluð gleði föstudaginn 22. janúar þegar fyrstu skólahóparnir í langan tíma komu í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund til að njóta fyrsta flokks jazztónlistar í skemmtilegri framsetningu.
Lesa meiraÁlagning gjalda 2021
Reglur um álagningu gjalda 2021 má sjá hér á vef Garðabæjar. Þar eru upplýsingar um útsvar og fasteignagjöld.
Lesa meiraÁnægja með þjónustu Garðabæjar á heildina litið
Garðabær lendir í fyrsta sæti þegar spurt er um ánægju með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið í samanburði við önnur sveitarfélög í árlegri þjónustukönnun Gallup sem var framkvæmd í lok árs 2020.
Lesa meiraLið og þjálfarar ársins 2020
Lið meistaraflokks karla Stjörnunnar í körfuknattleik var valið lið ársins á íþróttahátíð Garðabæjar sem var streymt í beinni útsendingu 10. janúar sl. Þá var einnig tilkynnt um val á viðurkenningu fyrir þjálfara árins sem að þessu sinni voru það þau Íris Ósk Hafþórsdóttir, knattspyrnuþjálfari hjá UMFÁ og Elías Jónasson, barna- og unglingaþjálfari Stjörnunnar í handknattleik.
Lesa meiraHilmar Snær og Ágústa Edda eru íþróttamenn Garðabæjar
Íþróttamenn Garðabæjar árið 2020 eru þau Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður og Ágústa Edda Björnsdóttir, hjólreiðakona.
Lesa meiraVinsamlegast ekki fóðra fugla á göngustígum og opnum svæðum
Að gefnu tilefni er rétt að benda á að þetta er talið óæskilegt að fóðra fugla á göngustígum og opnum svæðum bæjarins.
Lesa meiraStytting vinnuvikunnar í Garðabæ
Vinna við innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar í Garðabæ hófst fljótlega eftir að kjarasamningar voru undirritaðir á síðasta ári.
Lesa meiraTakmarkanir á samkomum rýmkaðar frá 13. janúar
Breytingar á samkomutakmörkunum taka gildi 13. janúar og gilda til 17. febrúar nk.
Lesa meiraÍþróttahátíð Garðabæjar verður sýnd í beinni vefútsendingu
Íþróttahátíð Garðabæjar verður með öðru sniði í ár vegna samkomutakmarkana. Hátíðin verður í beinni vefútsendingu sunnudaginn 10. janúar kl. 13.
Lesa meira- Fyrri síða
- Næsta síða