Nýtt leiksvæði fyrir hunda tekið í notkun
Nýtt afgirt hundasvæði við Garðahraunsveg hefur nú verið tekið í notkun.
-
Nýtt afgirt hundasvæði við Garðahraunsveg hefur nú verið tekið í notkun.
Nýtt hundagerði á opnu svæði við Garðahraunsveg hefur nú verið tekið í notkun. Verkefnið var valið í íbúakosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær 2023-2025.
Innan gerðisins eru leiktæki fyrir hunda og bekkir fyrir eigendur þeirra.

Við hundagerðið er skilti með umgengnisreglum og eru hundaeigendur hvattir til að virða þær og ganga vel um svæðið. Við hlið gerðisins er ruslafata og pokar.
Hér er hinn 15 ára Kalli við nýja hundasvæðið ásamt eiganda sínum. Kalli hafði hérna nýlokið við að kanna aðstæður og virtist líka vel.
Hérna geta hundar hlaupið lausir um, leikið sér og fengið útrás. Hundar skulu vera í taumi utan gerðisins
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar nýja hundasvæðið er staðsett.