• 1.6.2025 - 31.8.2025, 11:30 - 14:30, Krókur á Garðaholti

Sumaropnun í Króki

Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Opið alla sunnudaga frá 11:30 til 14:30.

Yfir sumartímann er opið í Króki alla sunnudaga frá 11:30 til 14:30 og aðgangur ókeypis.

Búið var í Króki til ársins 1985 þegar Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir lést en hún hafði búið á Króki frá 1934 ásamt manni sínum Vilmundi Gíslasyni. Þau áttu fjögur börn og móðir Vilmundar bjó einnig hjá þeim. Afkomendur Þorbjargar og Vilmundar í Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998 með því skilyrði að bærinn yrði endurbyggður. Jón Nordsteien arkitekt stjórnaði endurgerð bæjarins og Einar Hjartarson húsasmíðameistari var fenginn til að vinna verkið. Systurnar Elín og Vilborg Vilmundardætur höfðu umsjón með uppröðun húsmuna. Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar.

Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.