Fróðleiksmoli: Hvernig getum við gert hreyfingu skemmtilegri - Arnar Péturs fræðir gesti
Bókasafn Garðabæjar fær Arnar Péturs í heimsókn
Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 58 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn. Auk þess hefur hann fjórum sinnum keppt á HM í hálfu maraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum.
Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Þessa þekkingu notar hann í allri sinni þjálfun