Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.

Bókasafn Garðabæjar
Garðatorg 7
Sími: 591 4550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
Opnunartími
Virka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00
Upplýsinga- og menningarmiðstöð
Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.
Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
Fjölbreyttir viðburðir bókasafnsins:

Aðstaðan
Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti á báðum söfnum. Á aðalsafni hafa gestir aðgang að tölvum, prentara, ljósritun, vínylprentara, þrívíddarprentara og saumavél. Á 2. hæð safnsins er lesstofa, þar eru nokkrir lesbásar, hópvinnuborð og nóg af innstungum fyrir fartölvur. Á bókasafninu er einnig næðisklefi sem gestir geta fengið afnot af endurgjaldslaust í allt að tvær klukkustundir í senn. Þó er nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslunni eða á netfangið: bokasafn@gardabaer.is.
Lifandi Bókasafn








Álftanessafn
Álftanessafn er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.
Viðburðadagatal
Foreldramorgunn: fræðsla um matvendni barna
Sigrún Þorsteinsdóttir verður með fróðlegt erindi um matvendni barna og hvað er til ráða.
Viðburðir22.10.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
fimmtudagur, 22. október 2026 kl. 10:30 - 11:30
Hvernig breyttist heimurinn 11.september 2001?
Valur Gunnarsson, rithöfundur og blaðamaður, ræðir nýjustu bók sína, Frelsisbjarmar: Hryðjuverkastríð, efnahagshrun og endalok heimsveldis.
Viðburðir22.10.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
fimmtudagur, 22. október 2026 kl. 18:00 - 19:00
Bangsafjör á bangsadaginn
Myndabás með skrautlegum bakgrunni verður í boði kl.9:30 – kl.18. Upplagt að taka myndir af sér og uppáhaldsbangsanum.
Viðburðir27.10.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
þriðjudagur, 27. október 2026 kl. 10:00 - 18:00
Garðaprjón - hannyrðaklúbbur opinn öllum áhugasömum
Hannyrðaklúbburinn er opin fyrir öll og við hvetjum fólk til þess að koma, bæði reynslubolta og þau sem eru að taka sín fyrstu skref í prjónaskap.
Viðburðir27.10.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
þriðjudagur, 27. október 2026 kl. 17:00 - 18:45
Foreldramorgunn: Hrekkjavöku-Krílasögur og söngur
Þóranna Gunný, söngkona og deildarstjóri á leikskóla leiðir foreldra og krílin þeirra í skemmtilegri söng og sögustund.
Viðburðir29.10.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
fimmtudagur, 29. október 2026 kl. 10:30 - 11:00
Hrekkjavökuball
Hrekkjavökuball á bókasafninu, skuggalegir tónar og skemmtileg stemning fyrir börnin.
Viðburðir31.10.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
laugardagur, 31. október 2026 kl. 12:00 - 13:00