01.03.2010
Kjörskrá og Kjörfundur
Kjörskrá Garðabæjar
Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er 6. mars 2010, liggur frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar við Garðatorg, frá og með 25. febrúar nk. til kjördags.
Á kjörskrá eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í Garðabæ samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 13. febrúar 2010 og fæddir eru 6. mars 1992 og fyrr.
Íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda eftir 1. desember 2001 og náð hafa 18 ára aldri á kjördag, eru á kjörskrá í Garðabæ hafi þeir átt hér síðast lögheimili.
Íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2001, verða teknir á kjörskrá við þessar kosningar hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár fyrir 1. desember 2009.
Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna og eru því ekki á kjörskrár.
Athugasemdir við kjörskrá skulu berast bæjarstjórn, en leiðréttingar á kjörskrá má gera til kjördags.
Bæjarritari
Kjörfundur
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram eiga að fara 6. mars 2010 verður í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Kosið verður í eftirfarandi sex kjördeildum:
| I. Kjördeild | Aftanhæð – Boðahlein (Íslendingar búsettir erlendis) |
| II. Kjördeild | Borgarás – Greniás |
| III. Kjördeild | Grenilundur – Hvannalundur |
| IV. Kjördeild | Hæðarbyggð – Lynghæð |
| V. Kjördeild | Lyngmóar – Smiðsbúð |
| VI. Kjördeild | Steinás – Ögurás (Húsanöfn og bæir) |
Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Kjörstjórn hefur aðsetur á kennarastofu meðan á kjörfundi stendur.
Kjörstjórn Garðabæjar
Upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar eru á vefnum www.kosning.is
Á vefsíðunni www.thjodaratkvaedi.is er kynningarefni sem Lagastofnun Háskóla Íslands hefur unnið vegna atkvæðagreiðslunnar.